Nú stendur yfir norræn skartgripasýning í Listasetrinu Tjörnedala í nágrenni Simrishamn á Skáni í Svíþjóð og ber yfirskriftina Smycken så in i Norden, eða frjálslega þýtt, Skart er í tísku á Norðurlöndum. Sýningin er haldin að frumkvæði Samtaka listamanna á Skáni og með stuðningi Norræna menningarsjóðsins. Einum gullsmið frá hverju Norðurlandanna var boðin þáttaka í sýningunni auk átta fulltrúa frá Svíþjóð. Fyrir hönd Íslands sýnir Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður á Akranesi, verk sín. Við val á þeim var haft að leiðarljósi sérstaða sem einkenna verk hennar, efnismeðferð og úrvinnslu. Þar má nefna sútað fiskroð, íslenska steina og bein sem hún fellir með ýmsum hætti að hefðbundnum eðalmálmum.
Sýningin stendur til 8. ágúst nk. og nánari upplýsingar og sýningarskrá má finna á heimasíðu samtakanna http://www.oskg.nu
|